tag:blogger.com,1999:blog-92023992024-03-21T22:12:52.128+00:00Vefsetur Stóra JónsHeilu ári á eftir öllum heitustu fréttumJón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.comBlogger452125tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-37470863151095736282009-05-04T09:31:00.003+00:002009-05-04T09:41:14.447+00:00KíoskÉg komst eins nálægt því að vera skotinn og mögulegt er, þegar maður er Íslendingur, kaupir ekki hass og klæðir sig eins og hippi, ekki gangster, um daginn. Venjulega vakna ég ekkert sérstaklega snemma. Venjulega fer ég á fætur eftir 11 og er oftast á leiðinni út úr kíoskinu á horninu þar sem ég á heima klukkan korter yfir 12. En kl. korter yfir 12 á þriðjudeginum fyrir viku síðan þeystust tveir menn á mótorhjóli framhjá kíoskinu með vélbyssur og skutu mann sem var að labba þar fyrir utan (hann hafði víst einhver örlítil gengis-tengsl, en það er ekkert búið að sanna.) Fólk hljóp á eftir mótorhjólagenginu, bróðir mannsins hrópaði eftir hjálp og stemningin í götunni stigmagnaðist allsvakalega þannig að löggan lenti í smá slagsmálum.

Ég fór hinsvegar á fætur kl. 10 þennan dag og labbaði þess vegna út úr kíoskinu klukkutíma áður en venjulega. Efast um að ég komist nokkuð nær því að verða skotinn en þetta, og þess vegna það versta yfirstaðið fyrir mig. Engin ástæða að vera hrædd um líf mitt.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com8tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-60693015844909105762009-03-21T18:27:00.007+00:002009-03-22T21:27:40.355+00:00JónaNúna er ég loksins búinn að eignast litla frænku. Ég er því kominn með hinn mjög vinsæla titil móðurbróðir. Eða einfaldlega onkel, á dönsku. Þegar ég fékk fréttirnar, 17. mars, að litla stelpan væri komin í heiminn, 17 merkur, varð ég afskaplega glaður. Hljóp um leið út í búð og keypti vindil og deildi honum með Olgu, Danna og Elíasi í Kongens Have.

Ég er ekkert smá spenntur fyrir því að heimsækja fjölskylduna á Íslandi. Þannig að Íslendingar geta farið að undirbúa sig fyrir komur mínar, sem verða væntanlega margar á þessu ári. Ég ætla mér nefnilega ekki að vera "Jón frændi, sem býr í Danmörku og þú hefur aldrei séð.." Skilst mér að hún eigi víst þrjá onkel-a, mig og bræður hans Ásbergs. Samkeppnin verður því hörð, sérstaklega þar sem þeir búa á Íslandi, en ég er staðfastur á að verða uppáhalds onkel-inn hennar.

Hún er víst ekki komin með nafn ennþá, en ég er að sjálfsögðu búinn að segja öllum hér að hún muni heita Jóna, í höfuðið á uppáhaldsfrændanum sínum, ef ég fæ einhverju að ráða. En ég efast samt um að ég fái að ráða einhverju í því..Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-27511291986306742322009-03-05T12:09:00.002+00:002009-03-05T12:20:31.352+00:00Guns of NørrebroÉg bý á Blågårdsgade, sem liggur á Nørrebro. Það er, samkvæmt íslenskum fréttum, stríðsástand á Nørrebro. Það er dálítið ýkt.

Af og til eru hinar ýmsu skotárasir, þá oftast aðeins lengra upp Nørrebrogade en þar sem ég bý. Tveir færeyingar voru t.d. svo óheppnir að hjóla hægt niður eina götu, í leit að skemmtistað. Þeir vissu ekki að það er svakalega grunsamlegt, að minnsta kosti hvað varðar götugengin, að hjóla hægt. Það endaði ekki vel fyrir þá færeyinga.

En þetta eru bara fréttir. Ég hef ennþá ekki séð, né heyrt í skotárásum. Geri þannig séð bara ráð fyrir að ef ég held mig við dagsljós og þá minnst skuggalegu skemmtistaði og kaffihús, er ég ekki í neinni hættu sem ég gæti hafa forðast annars. Ef "rokkararnir" ákveða að fara að drulla haglaskotum á vegfarendur um miðjan daginn á Blågårdsplads, fer ég kannski að íhuga að flytja. En þangað til líður mér bara mjög vel á Nørrebro.

Annars unnum við í vinnunni verðlaun fyrir bestu auglýsingu á Zulu Awards. Auglýsinguna getiði séð á heimasíðunni okkar.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-15885529596880366342009-02-22T15:41:00.002+00:002009-02-22T15:43:29.514+00:00KuntzKoppel.dkJæja, ekkert mikið búið að gerast hér, en ég skellti mér í heimasíðugerð og gerði nýja heimasíðu handa stúdíóinu sem ég vinn hjá. Þar er meðal annars hægt að nálgast nokkur vídjó sem ég hef unnið að síðastliðin ár. Heimasíðuna finnið þið hér.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-3866180852012172212009-02-02T15:09:00.002+00:002009-02-02T15:19:49.133+00:00VíborgÉg kom aftur frá Viborg, á Jótlandi, síðasta Laugardag. Ég og Christian keyrðum í fjóra tíma, allsvakalega þunnir. Í Viborg, mjög lítill bær, er sumsé Animationsskóli og í þessum skóla voru þriðja árs nemarnir að klára lokaverkefnið sitt og fá Bachelor gráðu. Þar af leiðandi var stærðarinnar partí á Föstudeginum. Og ef þið þekkjið mig rétt á ég ekki auðvelt með að sýna ábyrgð og skella mér heim á undan öllum öðrum, bara af því að ég þarf að vakna snemma morguninn eftir.

Þannig að ég var í partíi til kl. 9 um morguninn og keyrði af stað til Köben kl. 12. Sem betur fer þurfti ég ekki að keyra bílinn.

Annars þurfti blessaða myndavélin mín að fara í rugl um leið og ég kem til skólans, þar sem meðal myndefna voru hlutir á borð við risastórt sjóræningjaskip, með litlum stop-motion sjóræningjum, og að sjálfsögðu mini-útgáfa af því skipi fyrir víðskot. Franskur maður var búinn að vera að vinna að þessu skipi síðasta eitt og hálft árið. Vonandi verður hann búinn að þessu fyrir 2011..

Það var annars mjög gott að komast út fyrir Köben, og það líka án þess að borga fyrir far og herbergi. Þurfti á smá sveitalífi að halda.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-53355463673240106852009-01-26T14:41:00.003+00:002009-01-26T14:47:59.310+00:00Óóó, snap!Það eru bara 49 vikur eftir af árinu. Við þurfum að fara að drullast til að gera eitthvað úr árinu 2009. Enn sem komið er hef ég gert lítið annað en að vinna og eyða pening í áfengi. Núna þarf að taka sig á. Á miðvikudaginn fer ég að minnsta kosti út til Jótlands í nokkra daga. Það er þó eitthvað.

Annars er ég búinn að vera lesa fréttir. Þar á meðal þessa hér, um 14 ára strák sem labbaði upp að lögreglustöðinni í Chicago í lögreglubúning og var sendur út að keyra með öðrum lögreglumanni. Og eftir fimm tíma vakt með þeim lögreglumanni föttuðu þeir fyrst að strákurinn var ekki alvöru lögreglumaður. Þessi strákur ætti að fá verðlaun fyrir frammistöðuna.

Það eru bara 12 vikur í að það fari að verða dálítið sumarlegt. Húrra!Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-7653303770389673362009-01-02T19:46:00.002+00:002009-01-02T20:07:50.812+00:00Dagur #2 á Nýju ÁriÍ dag er 2. janúar. Árið er 2009. Velkomin í framtíðina.

Heilt ár er liðið. Eitt atburðarríkt ár. Ég ætlaði að gera fullt, sem ég svo aldrei gerði. Ég ætlaði að verða núdisti. Það heppnaðist aðeins að hluta til, enda var ég alls ekki lítið allsber á síðasta ári. En meðlimur af núdistafélagi Danmerkur varð ég aldrei. Ég ætlaði að ferðast til Japan. Þangað fór ég ekki. Ég ætlaði að skipta um banka en endaði með að vera sáttur við helvítis Sydbank að mestu leiti. Hefði ég farið til Japan væri ég nú búinn að koma út fyrir Evrópu í fyrsta skipti.

En það er svo þunglyndislegt að hugsa um allt sem maður náði ekki að gera. Það er svo lítilvægt miðað við það sem ég náði að gera. Nektarmyndataka í Frímúrarahúsi, drekka bjór á pramma í miðri Kaupmannahöfn, hitta fullt af skemmtilegum og falleg kvenmönnum, hoppa nakinn í Søerne, hætta bæði í tveggja ára sambandi og háskóla á sama tíma, vera nakinn á Íslandsbryggju, búa með 6 norðmönnum í sama húsi, fara í sturtu í bala, sjá nafnið mitt á tjaldinu í kvikmyndahúsi, kaupa gítar, verið óhamingjusamlega ástfanginn (sem var í tísku árið 2008, en verður ekki í tísku 2009) og kenna í gamla skólanum mínum. Svo bara sumt sé nefnt.

Allt í allt var þetta atburðarríkt og geðveikt ár. Og ef það er eitthvað sem ég hef lært af því þá er það að maður veit aldrei hvað gerist og að einn mikilvægasti eiginleiki sem hægt er að hafa er að kunna að láta hluti koma sér á óvart.

Já, og að þynnkudagar geta verið bestu dagarnir. Nú bíð ég spenntur eftir degi #3 á árinu 2009.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-4802599415229194442008-12-22T07:12:00.003+00:002008-12-22T07:40:31.380+00:00í NóttÉg átti erfitt með að sofna í nótt. Og í þetta skiptið var það ekki útaf vælandi ketti eða Jolle (sambýliskonan mín) sem gleymdi að slökkva á sjónvarpinu.

Kl. 1 um nóttina, þegar ég var loksins sofnaður, byrjar einhver að banka harkalega á hurðina. Þar sem ég kem beinustu leið úr draumalandi er ég frekar lengi að átta mig á aðstæðunumm. Fyrst hélt ég að Jolle væri komin heim dauðadrukkin og sé læst úti. Því næst heyri ég að manneskjan sem er að banka er ekki ein. Nágrannarnir eru líka að mumla eitthvað út á gangi. Ég hugsa, hvað er Jolle að spá að öskra svona um miðjan nótt og vekja alla nágrannana?

Þegar ég svo loksins heyri að þetta er ekki kvenmannsrödd að öskra, heldur karlmannsrödd, byrjar viðkomandi að brjóta upp hurðina. Ég sé að í staðinn fyrir myrkrið, sem nú er ansi eðlilegt kl. 1 að nóttu til, blikka blá ljós fyrir utan gluggann minn. Ég staulast úr rúminu, klæði mig í nærbuxur og hleyp að hurðinni staðráðinn í að stöðva manneskjuna áður en hún brýtur upp hurðina. Þegar ég stend upp finn ég fyrst fyrir brunalyktinni.

Ég hika smá, því það leggst ekki vel í mig að fá hurðina alltíeinu brotna upp og fljúgandi í andlitið á mér, þannig að ég hreyfi mig hægt og rólega upp að hurðinni og banka svo harkalega til að gefa til kynna að það er einhver hinum megin við. Þegar ég opna fæ ég svo þrjú fáranlega björt ljós beint beinustu leið í augun mín. Lögreglan stendur fyrir utan og þrír slökkviliðsmenn hlaupa upp tröppurnar. "Það er kviknað í!" "Við þurfum að fá alla út!" "Ert þú Carl?" Allir eru að öskra eitthvað á mig og ég er nývaknaður og ruglaður. "Nei, ég heiti Jón. Má ég fara í buxur?" Ég fæ að fara í buxur, en í ég flýti mér of mikið og gleymi að fara í jakka.

Þegar ég kem út sé ég eina konu sótsvarta í andlitinu, en allir aðrir eru í ágætu ástandi. Þ.e.a.s. miðað við að flestir voru að vakna. Það varð sem betur fer enginn brunaskaði í öllum öðrum íbúðum en þeirri sem upptökin voru í, á 5. hæð og íbúðinni við hliðina á. Eftir einn og hálfan tíma fengum við svo að fara aftur inn. Þegar ég er kominn inn og laggstur í sófann og búinn að róast aðeins niður bankar einhver á hurðina. Þá kom Jolle loksins heim, allsvakalega drukkin. "Hvað gerðist eiginlega?" "Það kviknaði í." "Vá, ok. Þúst, hér?" "Nei, á 5. hæð." "Ok, góða nótt."

Eitt gat ég þó skemmt mér við. Útaf því að ég hafði gleymt að taka með mér jakka var ég sendur inn í lögreglubíl að halda hitanum. Þar var lögreglutalstöð sem af og til tilkynnti mér hvað var að gerast í bænum. Eitt af tilkynningunum hljómaði svona: "Okkur hafa borist fregnir af þjófnaði. Kíkið eftir rauðum Mercedes Benz. Í bílnum er feit, miðaldra kona og ungur maður. Þar að auki er, í skottinu, jólatréið sem þau stálu."

Ég hló upphótt en enginn annar hló.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-20285970575073702752008-12-19T13:47:00.001+00:002008-12-19T13:47:19.609+00:00Gleðileg Jól<object width="640" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/uE2ujQM1ljM&hl=en&fs=1&rel=0&color1=0x5d1719&color2=0xcd311b"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/uE2ujQM1ljM&hl=en&fs=1&rel=0&color1=0x5d1719&color2=0xcd311b" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="640" height="385"></embed></object>Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-22559979013906208472008-12-09T04:23:00.002+00:002008-12-09T04:24:15.088+00:00Æðislegt hvernig myndin af ísbjörninum í þessari færslu breyttist í hálfnakinn karlmann með byssur og Guitar Hero gítara, án þess að ég gerði neitt. Internetið, dömur mínar og herrar.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-14647774388134855102008-12-09T03:40:00.006+00:002008-12-09T04:19:45.654+00:00Hvað er frumefni mánaðarins?Þetta er mynd af mér og Olgu, þegar ég kom heim á föstudagsnótt fyrir rúmri viku síðan. Ég kom heim kl. 8 um morguninn og settist niður í sófa með kebab og ætlaði að horfa á bíómynd þegar alltíeinu hreyfist eitthvað í rúminu mínu. Sambýliskonan mín hafði víst hleypt inn Olgu, sem hafði misskilið fyrri hluta skilaboðs míns um að "hitta mig og svo geturðu bara gist hjá mér." Það er óhætt að segja að ég hafi fengið hjartaáfall, þar sem ég var handviss um að nú lægi einhver róni í rúminu mínu, sem Jolle (sumsé, sambýliskonan) hafði hleypt inn.

Annars er lífið ágætt. Ég keypti mér gítar og hann hljómar geðveikt vel. Þ.e.a.s. þegar einhver annar en ég spilar á hann. Það er lítið að gera í vinnunni eftir að ég kláraði að klippa showreel fyrir stúdíóið.

Ég er farinn að hlakka geðveikt til að koma til Íslands um jólin. Og þá ekki minna að fljúga heim með Olgu, sprellkonunni sjálfri. Ég býst fastlega við að drukkið verði rauðvín í þeirri ferð.

Það er einfaldlega ekki hægt að sofna í þessari íbúð. Annaðhvort hefur Jolle gleymt að slökkva á sjónvarpinu og ég meika ekki að læðast inn og slökkva á því sjálfur af hræðslu við að hún liggji þarna nakin í sófanum. Eða þá er kötturinn sem kann ekki að mjálma eðlilega fyrir utan hurðina mína að mjálma endalaust.

Orð dagsins: Nix
Áhugamál vikunnar: Hin ýmsu áhrif snapsdrykkju
Frumefni mánaðarins: Praseódým (59 - Pr)
Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-27781408641847679572008-11-11T12:09:00.004+00:002008-11-11T12:45:36.802+00:00Ég er ekki þegar að það á svo viðÞetta er afar sniðugt. Skrifar inn texta, eða smellir inn link á bloggið þitt (eða hvað sem er, þannig séð) og forritið býr til orðaský handa þér. Tók víst bara nokkur af nýjustu færslunum hjá mér, en ansi töff pæling samt sem áður.

Fyrir viku síðan endaði ég með að vaka alla nóttina í kollegíu á Gyldenløvesgade. Ég horfði nefninlega á kosningarnar í USA, eins og margir aðrir gerðu væntanlega. Obama vann og tilfinningin var mögnuð. Hver veit hvaða raunveruleg áhrif, ef einhver, þetta hefur á heiminn. En það er eitt ljóst, hann hefur ótrúlega hæfileika til að grípa athygli okkar. Og á jákvæðan hátt, ekki á sama hátt og W. Og það gerir mig vongóðan um að það komi betri hlutir frá Ameríku næstu árin.

Allaveganna, núna fer að styttast í Íslandsferð. Einn og hálfur mánuður, ef ég er að reikna rétt upp í hausnum á mér akkúrat núna. Á Íslandi er mikið af fólki sem ég hlakka til að sjá, en til Íslands koma líka systur mínar. Sérstaklega ætti ég að nefna kasóléttu, elsku litlu systur mína Freyju. Sú staðreynd vekur mikla ánægju frá mér, ekki bara af því að það er æðislegt að systir mín er að eignast barn. Það sem vekur sérstaka ánægju er að ég er að fara að eignast frænku! Lítið barn sem á eftir að líta á mig, hugsa "Hver er þetta?" og ég á eftir að segja "Ég er frændi þinn, Jón." Og frá því augnabliki á ég eftir að kenna henni allt sem ég kann, sem mamma hennar þorir ekki að kenna henni. Og þegar hún er ekki alveg orðin nógu gömul til að drekka, hittir hún Jón frænda sem gefur henni einn lítinn bjór. "Og ekki segja mömmu þinni frá þessu.."Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-89346179344350968712008-10-25T16:26:00.003+00:002008-10-25T16:45:43.655+00:00Microsoft og Hommafóbía<object height="344" width="425"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/aXqJI-iut5w&hl=en&fs=1"><param name="allowFullScreen" value="true"><embed src="http://www.youtube.com/v/aXqJI-iut5w&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowfullscreen="true" height="344" width="425"></embed></object>

Jæja, hó hó! Hérna er nýafstaðið verkefni frá stúdíóinu sem ég vinn fyrir.

Þetta er auglýsing fyrir Microsoft Office pakkann, sem ég skannaði/litaði og sá um compositing* fyrir. Mjög áhugavert verkefni, tók ekki langan tíma og það var gaman að segjast hafa unnið fyrir Microsoft.

Hinsvegar ákváð Microsoft að láta eins og fávitar þegar við vorum búin að klára auglýsinguna. Ef þið eruð búin að horfa á þetta, þá tókuð þið kannski eftir einni senu þar sem það virðast vera tvö Word lógó að stunda kynlíf. Þegar framleiðslufyrirtækið sem við unnum með sýndi Microsoft auglýsinguna báðu þau okkur um að censora þessa senu. Við spurðum í kjölfarið Microsoft fólkið afhverju það ætti að censora akkúrat þessa senu og ekki aðra kynlífssenu á milli tveggja mismunandi lógóa. Við spurðum hvort þau hefðu einhverja mjög undarlega, abstrakt fóbíu fyrir samkynhneigð. Þar að auki var þetta þeirra eigin hugmynd. Það þarf einhverja sérstaka snilldargáfu að finnast hugmyndin af tveimur Word-lógóum að stunda kynlíf á tröppum fyrir utan skemmtistað fáranlega góð á pappír, og að finnast það svo einum of hýrt og ekki mönnum sæmandi þegar það er svo teiknað, litað og sýnt á skjá.

Það endaði svo með aðeins styttri senu, og hjörtum eftir á. Svona svo þetta væri ekki of hart. Já, og svo breyttu þeir laginu svo það væri aðeins meira sykursætt.

Hey, já. Svo horfði ég loksins á Iron Man. Frábær afþreying. Downey Jr. er æðislegur.

* Compositor er sá sem setur saman alla mismunandi hluta af senu, þ.á.m bakgrunn, effekta o.s.frv. Í sumum tilvikum er þetta ekki neitt svakalega stór hluti af vinnunni en í þessu tilviki var þetta 2/3 af öllum þeim tíma sem fór í að gera myndina. Allt sem er ekki lógóin, er composit vinna hér. Ljós, kameratúrar, hreyfingar á sápukúlum, speglun í gólfinu, setja saman hóp af fígúrum og fleira.
Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-52829419226253251052008-10-24T07:33:00.002+00:002008-10-24T07:42:33.443+00:00Heil og sælJæja, ég ákvað að skella einni té-skyrtu hugmynd inn á threadless.com fyrir keppnina þeirra undir nafninu threadless loves travel. Skemmtilegt nokk er þessi keppni haldin í samvinnu með Icelandair. Þar af leiðandi er hluti af verðlaununum miðar til Íslands. Allaveganna, ef þið hafið tíma megið þið gjarnan skella ykkur inn og gefa hugmyndinni einkunn. Smellið á myndina hérna fyrir neðan og skapið ykkur notendanafn á síðunni.

Það er ekki mikið að frétta af mér, annars. Ekkert sérstaklega mikið að gera í vinnunni, en ég byrja bráðum að kenna í Borups. Ekki er ennþá búið að skjóta mig á hættulegum götum Nørrebros. Ég keypti húsgögn í herbergið mitt, löngu tímabært. Og ég keypti mér iPod nano, sem er unaðslegt fyrirbæri. Ég kem til Íslands 22. des og ætla að krassa húsið hennar Katrínar og halda partý.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-17227777978537689392008-10-13T12:18:00.002+00:002008-10-13T12:21:24.226+00:00FjármálaósköpJæja, núna hafa væntanlega allir hripað niður einhver orð, eða skoðanir, varðandi efnahagshrikalegheitin á Íslandi. Og að sjálfsögðu í restinni af heiminum.

Það eina sem ég hef að segja um þetta er:

Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-22783405693046077192008-10-12T17:12:00.003+00:002008-10-12T17:24:29.846+00:00MannanafnanefndÉg hef aldrei skilið tilganginn með Mannanafnanefnd. Afhverju að setja einhvern hemil á sköpunargáfu foreldra hvað varðar nafnagjöf barna? Er ekki hægt að treysta þeim til þess að gefa börnum sínum falleg nöfn? Og hvernig getur nefnd af einstöku fólki ákveðið hvað er ásættanlegt í landi með 300.000 manneskjum? Þar að auki nefnd sem að kýs að kalla nafnið Bambi ásættanlegt. Get ég þá kallað barnið mitt Dúmbó?

Núna er örugglega mjög gott fyrir Mannanafnanefnd að fara að góðkenna mikið af útlenskuhljómandi nöfnum. Það er víst ekkert gott að vera Íslendingur lengur, eða að vera með nafn sem hljómar íslenskt að uppruna. Þá er Dúmbó heldur ekkert sérstaklega slæmt. Mjög internationalt, jafnvel.

Svo er skemmtilegt þegar fólk er farið að nafngefa börnum sínum frægum nöfnum á borð við Napóleon og Elvis, eða jafnvel Jesús. Ennþá skemmtilegra þegar það er gert í Danmörku. Elvis Hansen, Napóleon Jensen og Jesús Edelbo Pedersen.

Ef ég fæ einhverntímann strák, ætla ég að skíra hann Vífil Skíðdal Jónsson. Þá verður hann kallaður Vi vil skide, Dahl í Danmörku.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-52875076367871174622008-10-10T14:53:00.003+00:002008-10-10T15:00:01.059+00:00DR.DKJæja, ef þið kíkið yfir á forsíðu dr.dk þá er að sjá ákveðnar breytingar. Þar einna helst, neðst á forsíðunni, myndasögurnar sem unnu keppni þeirra síðastliðið ár. Já, dömur mínar og herrar. Ein sú mest lesna fréttasíða í Danmörku hefur sýnt heimilisfræðina mína á forsíðu sinni.

Það róterar á milli fjórum myndasögum frá öllum þremur vinningshöfum. Í dag er "fulli skápurinn" þarna. Á morgun? Hver veit.

Núna er ég bráðum að fara að demba hrósi yfir hana litlu, krúttlegu Olgu mína.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-47407048182111953622008-09-22T08:39:00.002+00:002008-09-22T08:42:17.468+00:00Baulaðu BúkollaSvakalega er dýraríkið hér í kringum herbergið mitt skrautlegt. Ekki nóg með að kettir kúka út um allt í íbúðina og eru ofurgáfaðir og kveikja á tónlistinni minni. Núna er kominn hundur fyrir utan sem geltir og baular eins og kú. Og alltaf kl. 9 um morguninn.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-45185798320286388632008-09-16T22:54:00.006+00:002008-09-17T01:04:01.716+00:00Heimsókn og NektSæl og blessuð. Þetta er löng færsla um heimsókn, en í lokin er smá nekt. Þannig að veriði þolinmóð.

Ef þið hafið lesið bloggið hans Helga þá vitiði að strákurinn kíkti í heimsókn hér um helgina. Það var afar góð og skemmtileg helgi, þar sem farið var á hina ýmsu bari og jafnvel kíkt í mat í gamla skólanum mínum (nýja skólanum hennar Olgu.) Skemmtilegast var kannski hversu ofurölvi Olga varð á föstudagskvöldinu þar sem hún, á stað sem heitir Hvíta Lambið, ákvað að hella úr blómavasa og byrja að skvetta á alla skólavini sína. Sú hugmynd var ekki vinsæl. Kannski skrifar Olga svo á blogginu sínu um heimferðina það kvöld. Hún var víst mjög skrautleg sú ferð.

Með Helga kom vinkona hans frá skólanum, Hilda frá Hollandi. Áður en við hittum hana tókst mér að ljúga að Olgu að ég hefði séð hana áður og að hún væri í rauninni hestur. Olga komst síðar að því að hún var ekki hestur, heldur ein afar hress stelpa og einnig mjög góð í borðfótbolta. Ég og hún áttum sigur yfir Helga og Daða tvisvar sinnum. Þeim var ekki skemmt.

En nú er Helgi farinn aftur til Svíþjóðar og á meðan hann er að afla sér frægða í því útlenska ríki og Olga er upptekinn við að afla sér vinsælda í sínu margslungna danska skólakerfi verð ég að finna mér eitthvað til að takast á við. Síðastliðna fimm mánuði hefur það verið afar krefjandi verkefni í teiknimyndagerð. Því lauk fyrir tveimur vikum síðan og er það mér mikill léttir. Myndin verður vonandi frumsýnd í nóvember, en hún er blanda af heimildarmynd og teiknimyndum sem sýna ákveðna fortíðarviðburði í lífi manneskjunnar sem myndin fjallar um. Spennandi!

En þá er komið að nekt. Sumir muna eftir ákveðinni myndatöku sem ég tók þátt í. Þar voru menn í kuflum, ásamt konum í frekar lítið af kuflum. Hérna eru svo myndirnar úr því, sem ég var fyrst að taka eftir núna. Nú getum við öll farið í skemmtilegan leik. Hvar er Jón á öllum myndunum? Vísbending: Ég gleymdi að fara í skó á einni myndinni.

Og ef þið getið það, þá getiði líka prófað að leita að Gökhan, Jakob, Steffen og Krøll.

Gefisti upp? Jæja, þá getiði fengið svörin ykkar hér.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-830410964028845062008-09-10T20:14:00.003+00:002008-09-10T20:37:03.184+00:00Jæja, við erum ekki dáinEnda er fáranlegt að halda að uppátæki vísindamanna í göngunum milli Sviss og Frakklands muni nokkurntíman skapa svarthol, hvað þá eitt sem er nógu sterkt eða stöðugt til að slúga upp jörðina. Ég vildi óska þess að fólk væri í jafnmiklu paník yfir gróðurhúsaáhrifum.. það stafar í það minnsta alvöru hætta af þeim.

Ég er kominn heim. Heim til Danmerkur, sumsé. Allt er eins og það á að vera. Bjórsmökkun á mánudögum, ruslfæði á miðvikudögum yfir Lost-glápi. Þessa helgi verður væntanlega farið í Borups kvöldmat með Olgu og Helga.

Apple hefur tilkynnt, fremur fljótlega, glænýjan iPod nano. Hann sparar pláss með því að snúa 2" skjánum frá þeim gamla lóðrétt. Í staðinn hefur nano'inn fengið lánað snúningsmælinn úr iPod Touch, og þannig getur maður snúið honum á hlið og horft á kvikmynd í víð-formati. Jón langar í.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-79441288077292989572008-08-28T20:38:00.003+00:002008-08-28T20:48:04.471+00:00Ísland, fagra ÍslandJæja, þá er kallinn mættur til heimalandsins. Og kannski alveg við hæfi að mæta þegar Íslendingar eru stoltastir. Daginn eftir að ég lenti, lentu sumsé, eins og allir vita, silfurstrákarnir. Ég fór að sjálfsögðu út á Arnarhól og tók á móti þeim. Súrrealístisk stemning hófst með Páli Óskari að reyna að troða öllum hitturum sínum inn í athöfnina, með afsökunum á borð við "Ég er viss um að strákarnir okkar hugsuðu allan tímann um ást, þegar þeir kepptu á móti Spánverjum" og söng síðan eitthvað af sínum mörgu lögum um ást. Laddi kom inn og tók einhvern sketch og tæknimaður og sjúkranuddari landsliðsins var fagnað af nánast jafnmiklum krafti og Ólafur Stefáns. En þetta var alveg mjög gott stuð og ég er að sjálfsögðu mjög stoltur yfir frammistöðu liðsins.

En núna veit ég ekkert hvað ég á að gera. Allir eru svo uppteknir að ég sit mestallan tímann bara heima og hlusta á Best of Chuck Berry diskinn hans pabba.

Annars er í fréttum að ég tók á móti Helga Rafni á Lúfthöfninni í Köben síðasta Sunnudag. Við keyrðum með lest til Lund að hitta Torbjorn og Hrafnhildi sem ætluðu að skaffa þak yfir höfuð Helga næsta hálfa árið. Kallinn er meira að segja búinn að stifta nýtt blogg sér fyrir Svíþjóðar skandala sína.

Núna ætla ég bara að vona að Egill sé laus svo við getum skellt okkur niður í bæinn í einn bjór eða tvo. Ef þið eruð að lesa þetta blogg frá Íslandi, og eruð ekki með nýja númerið mitt, þá er það 867-0121.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-82496019760757094282008-08-09T14:27:00.003+00:002008-08-09T14:40:26.409+00:00Little Miss Flaming Sunshine LipsÉg fór á Flaming Lips tónleika í gær. Jakob hafði kynnt fyrir mér sýningahæfileikum þeirra á DVD diski með tónleikum þeirra í Óklahóma, heimabæ þeirra. Ég var ekki að búast við svipuðu showi í gær, þar sem tónleikarnir voru haldnir í Tivoli í Köben. En sannleikurinn var sá að þetta var með bestu upplifunum lífs míns. Það er ekki hægt að lýsa þessari magísku upplifun í orðum, þegar þú lítur upp í himininn og sérð konfettí rigninguna velta yfir þig úr hinum ýmsu fallbyssum af sviðinu í byrjun viðlags Do You Realize??. Það voru svo margir hápunktar að ég get ekki ákveðið mig hver var sterkari.

Fyrir 85 kr danskar, er ekki hægt að kvarta yfir neinu á þessum tónleikum.

Ég keypti Little Miss Sunshine á DVD um daginn. Var að horfa á hana í dag. Hún er alveg jafn skemmtileg, falleg og fín og ég mundi eftir. Ef einhver er ekki búinn að sjá þessa mynd, þá er hún skylduáhorf næst þegar þið leigið ykkur DVD.

Þáttaröð vikunnar: Hin vanmetna, sem náði ekki lengra en eina seríu á meðan rusl eins og King of Queens er í tíundu seríu, Studio 60 on the Sunset Strip.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-30803917371254585122008-08-08T08:43:00.002+00:002008-08-08T08:54:44.333+00:00FatlaðurUm daginn tókst mér, með miklum tilþrifum, að rífa handlegginn minn úr lið. Með því að hoppa í vatn.

Ég lenti ekki á neinu, ég var ekki bundinn við bakkann eða eitthvað þvíumlíkt. Ég hoppaði bara á vatnið. Það er víst ekki alveg hættulaust að stinga sér í vatn á Islands Brygge, eins og ég hef alltaf haldið fram. Ekki ef þú ert óendanlega óheppinn. Við stunguna flýgur vinstri höndin mín aðeins til hliðar áður en ég kem í vatnið. Allur líkaminn minn flýgur því í gegnum vatnið, eins og venjulega, fyrir utan vinstri höndina. Ég kem upp á yfirborðið öskrandi, nakinn og með höndina gjörsamlega óhreyfanlega.

Þar sem ég er með ónýta handlegg get ég ekki komið mér upp úr vatninu þannig að ég, eins og hinn mesti Rambo eða Martin Riggs, fer upp að stiganum og kippi sjálfur handleggnum í lið.

Ég fór til læknisins viku eftir, til að athuga hvort að allt væri í lagi og allt var í góðu. Engin brot, engin slitin liðabönd og í rauninni fór ég ekki alveg úr lið. Ég reyni að forðast að segja þann hluta sögunnar, því það er ekki eins svalt að fara næstum því úr lið, en ég verð nú að vera hreinskilin við ykkur. Eitthvað hreyfðist til, því ég ýtti klárlega einhverju aftur þar sem það átti að vera. En ég er ekki ennþá kominn í hóp þeirra sem hafa farið úr lið og því bara upplifað hluta af sársauka þeirra.

Hinsvegar, er ég kominn í hóp þeirra sem eiga auðveldara með að fara úr lið. Sem er ömurlegt. Og ég þurfti að vera með fatla í viku. Sem er líka ömurlegt, nema þegar maður notar það sem conversation starter við stelpur.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-37395657919580289372008-07-18T17:47:00.002+00:002008-07-18T18:00:50.035+00:00Ég er búinn að fá nóg af kattarskítEf ég sé enn einn kattakúkinn fyrir utan hurðina mína fer ég og myrði þessa tvo ketti. Þetta eru alveg fáranlegustu kettir sem ég hef nokkurntímann deilt íbúð með. Einn þeirra kúkar út um allt, og alltaf annaðhvort rétt fyrir framan klósettið sitt, eða í rúmið mitt.

Og hinn kötturinn er bara skrítinn. T.d. núna labbaði hún inn í herbergið mitt og kveikti á tölvunni minni og setti tónlist í gang. Ég er pínu hræddur við þann kött.Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-9202399.post-23418152214113412292008-07-05T14:00:00.006+00:002008-07-05T15:57:42.409+00:00"One, two, three.. " - "Wait, wait.. one, two, three and then go?"Lethal Weapon serían er afskaplega merkilegt fyrirbæri. Allir þekkja myndirnar, en þegar ég hugsa út í það man ég aldrei hvað gerist í hvaða mynd. Ég man eftir svona.. hvað á maður að kalla það? Hápunktarnir í seríunni. En ég man aldrei í hvaða mynd þeir birtast.

Þannig að ég ákvað að horfa á alla seríuna. Ég byrjaði á númer tvö. Af því að ég hélt að númer eitt væri sú sem að ég mundi best eftir, og að ég hefði aldrei séð númer tvö.

Lethal Weapon 2

Einu sinni voru hryðjuverkamenn ekki búnir að ráðast á Bandaríkin og þá þurftu handritshöfundar að vera aðeins hugmyndaríkari hvað varðar vondu kallana í hasarmyndum. Skúrkarnir í Lethal Weapon 2 er National Party diplómati frá Suður Afríku og fylgismenn hans, sem í byrjun myndarinnar eru að smygla peningum. Mitt í öllu þessu mótmælir fólk hart fyrir utan skriftofu diplómatans gegn kúgun þeirra á Suður Afrísku fólki. Þetta setur mjög góðan tímaramma á myndina, auk þess að vera ansi frumlegt. Lethal Weapon 2 er þess vegna komin á gott ról alveg frá byrjun.

Jæja, þá er bara að fara í aðalatriðin. The good stuff. Það sem gerir Lethal Weapon að Lethal Weapon.

Myndin byrjar á því að Riggs og Murtaugh gera eitthvað fáranlegt og sprengja upp hluti: Já
Fylgismaður drepinn af höfuðskúrki í byrjun myndar: Já
Roger Murtaugh missir sig yfir einhverju varðandi elstu dóttur sína: Já
Martin Riggs hittir hina einu sönnu: Já
Riggs fer úr lið: Já
Murtaugh sér eftir því að hafa gert eitthvað: Já
Riggs eyðileggur bílinn hans Murtaugh: Já
Riggs gerir grín að Murtaugh á löggustöðinni: Já

8 af 8. Mjög gott. Klárlega eðal Lethal Weapon fílingur á ferð þarna.

Hápunktar myndarinnar: Klósettsprengjan, Kynlíf, Þyrluárás á hjólhýsið, Van Den Hagendaas drukknar, Húsið á stólpunum.

Já, og þetta, sem er mögulega besta atriðið í allri seríunni:

<object height="344" width="425"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/l10U7YxRdDU&hl=en&fs=1"><param name="allowFullScreen" value="true"><embed src="http://www.youtube.com/v/l10U7YxRdDU&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowfullscreen="true" height="344" width="425"></embed></object>Jón Kristjánhttp://www.blogger.com/profile/15155887872751942368noreply@blogger.com2